Wednesday, December 28, 2011
Wednesday, April 20, 2011
Friday, April 8, 2011
Pabbi hvað er þetta?

Við Margrét brugðum okkur á indverskan take-away stað í gær. Á meðan við biðum eftir matnum opnast hurðin og inn gengur lítil ljóshærð stúlka á þrítugsaldri og þegar ég segi lítil þá meina ég að hún var dvergur. Í fyrsta skiptið síðan Margrét fæddist þagnar hún algjörlega og stendur og starir á dömuna. Eftir nokkrar mínútur kallar herra Ramasjang á mig og segir að maturinn sé tilbúin þannig að ég stend upp pikka í Margréti og geng að afgreiðsluborðinu til að borga. Margrét rífur í hendina á mér og eftirfarandi samræður eiga sér stað:
Mamabó : "Pabbi, pabbi hvað er þetta?" (og bendir á litlu dömuna)
Pabbi : "Þetta er stelpa, bara svolítið lítil"
Mambó : "já en afhverju?"
Pabbi: "Sumir eru bara aðeins minni en aðrir. Þessi stelpa er dvergur"
Mambó: "Nei pabbi dvergar eru með svona hatta" (og leikur oddmjóan hatt á hausnum á sér)
Pabbi: "Nei elskan mín það er bara í teiknimyndum"
Mambó: "ég held að þetta sé Rassálfur"
...
...
Þó að heimur sé ekkert mjög stór þá eru sumir alltaf að læra og sjá eitthvað nýtt
Kveðja úr köben
Sunday, April 3, 2011
það eru tæp 4 ár milli lillu og mambóar.
lilla 10 daga
mambó
Hlakka til að sjá þessar skvísur dafna og þroskast
....til hamingju elsku eva mín....
..... já ég á ekki síma sem tekur betri myndir en þetta en finnst þær samt fallegar.
Tuesday, March 22, 2011
kannetta.!
Sunday, March 13, 2011
Wednesday, March 2, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)








